HomeFréttirIngi Þór: Eitt flottasta KR lið sem ég hef séð

Ingi Þór: Eitt flottasta KR lið sem ég hef séð

 

Ingi Þór, þjálari Snæfells, var brattari en margir eftir að hafa dottið út gegn KR í kvöld enda vill hann meina að ekkert lið sé að fara að vinna KR í vetur.  Snæfell barðist vel í kvöld og náðu á tímabili í fyrri hálfleik að komast yfir en eltu svo allan seinni hálfleikinn þangað til KR stakk af á lokamínútunum.  Snæfell hefur því lokið keppni í vetur.

 

 

Hvað hefði Snæfell þurft að gera til að eiga möguleika hérna í kvöld? 

“Einhverjir þrír fjórir að meiðast hjá KR eða eitthvað.  Við erum bara ekki eins góður og KR í dag og ég vill bara óska þeim innilega til hamingju.  Þetta er eitthvað flottasta KR lið sem ég hef séð og þekki ég nú KR söguna mjög vel.  Þetta lið er gríðarlega spilandi og ég sagði við einhvern fjölmiðili hérna fyrir leik að við þyrftum að eiga algjörlega outstanding leik á báðum endum vallarins.  Mér fannst við standa okkur rosalega vel gegn sterkri vörn KR, sóknarlega séð, en varnarlega séð, ef þú ætlar að vinna KR þá leyfiru þeim ekki að skora 100 stig”.  

 

En það þarf enginn að skammast sín fyrir að tapa gegn svona sterku liði KR? 

 

“Það mun ekkert lið sigra KR í vetur,það er bara mjög einfalt mál. Við erum ekkert eina liðið, við erum bara fyrsta liðið til þess.  Veturinn endar hérna hjá okkur vegna þess að við vorum að tapa leikjum sem við áttum fyrirfram að vinna og endum í 8. sæti.  Þar af leiðandi lendum við á móti lang besta liði deildarinnar í dag.  Ég hefði séð okkur eiga séns í Keflavík, Grindavík og Njarðvík, en ekki KR”.  

 

[email protected]

mynd:  JBÓ

Fréttir
- Auglýsing -