Nýjasti þátturinn af Iðnaðartroði er kominn í loftið í umsjón Magnús Björgvin Guðmundssonar og Gísla Ólafssonar að vanda. Í þetta skiptið komu Stígur Helgason og Gylfi Már Geirsson í heimsókn til þess að ræða það nýjustu málin úr NBA deildinni. Meðal umræðuefna var nýjasti þjálfari Sacramento Kings, George Karl, áhugavert met Milwaukee Bucks, meiðslavandræði Blake Griffin og fullkomni janúarmánuður hjá Atlanta Hawks. Sem fyrr er þátturinn á twitter undir nafninu @idnadaratrod og á alvarpi Nútímans.
Iðnaðartroð : Griffinlausir Clippers og fullkomnir Atlanta Haukar
Fréttir




