Fyrsti þátturinn af Hver er körfuboltahetjan? er loksins kominn í loftið!
Í þættinum fær stjórnandinn Árni Þór Hilmarsson til sín engan annan en Bjarna Bjarnason, sem margir þekkja einfaldlega sem neðrideildarkónginn sjálfan. Saman kafa þeir ofan í Bæjarins Beztu deildina, rýna sérstaklega vel í sunnlensku liðin en fara einnig um víðan völl yfir það sem hæst ber í neðri deildunum.
Að sjálfsögðu er líka spreytt sig á fyrsta giski þáttarins – hver er maðurinn? – en við ætlum ekki að skemma spennuna með því að gefa neitt upp hér. Þið verðið einfaldlega að leggja við hlustir og giska með!
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




