Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands birti í dag niðurstöður sínar í sex agamálum þar sem bæði þjálfarar og leikmenn í Bónusdeildunum og Bæjarins Beztu deild kvenna voru sektaðir, en engin leikbönn voru kveðin upp að þessu sinni.
Baldur Ragnarsson, þjálfari Álftaness, fékk tvær sektir í dag. Annars vegar var hann sektaður um 40.000 krónur vegna háttsemi sinnar í leik Álftaness og Grindavíkur þann 19. nóvember síðastliðinn og hins vegar um 20.000 krónur fyrir að hafa safnað fjórum tæknivillum á tímabilinu.
Anna Lóa Óskarsdóttir, leikmaður Þórs Þorlákshöfn, var sömuleiðis sektuð um 40.000 krónur vegna háttsemi sinnar í leik KV og Þórs Þ. í Bljarins Beztu deild kvenna þann 22. nóvember.
Þá fengu þrír aðrir 20.000 króna sekt fyrir að hafa náð fjórum tæknivillum á leiktíðinni: Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, leikmaður hans Dee Bost, og Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.




