HomeFréttirÞjálfari Tyrklands ósáttur við FIBA vegna stöðu Tarik Biberovic fyrir leikinn gegn...

Þjálfari Tyrklands ósáttur við FIBA vegna stöðu Tarik Biberovic fyrir leikinn gegn Íslandi

Ergin Ataman, landsliðsþjálfari Tyrklands, hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun alþjóðakörfuknattleikssambandsins, FIBA, um að neita að breyta skráningu framherjans Tarik Biberovic þannig að hann teljist innlendur leikmaður í stað erlends (naturalized) leikmanns.

Íslenska karlalandsliðið mætir einmitt Tyrklandi ytra í seinni leik sínum í komandi landsleikjaglugga í undankeppni HM 2027 næstkomandi sunnudag, 29. nóvember, klukkan 15:30 að íslenskum tíma. Íslenskir körfuboltaáhugamenn muna eflaust vel eftir Biberovic, en það var einmitt hann sem sökkti íslenska liðinu með ótrúlegri flautukörfu þegar Ísland og Tyrkland mættust síðast ytra í Tyrklandi.

Í viðtali við beIN Sports sagði Ataman að tyrkneska sambandið hefði barist fyrir því að fá stöðu Biberovic breytt enda hafi hann leikið í Tyrklandi í áratug og teljist innlendur leikmaður í tyrknesku deildinni. „Því miður vill FIBA ekki veita Tarik Biberovic þá stöðu sem við óskuðum eftir,“ sagði Ataman og bætti við að ákvörðunin setti Tyrkland í óþægilega stöðu bæði nú og á heimsmeistaramótinu á næsta ári, þar sem aðeins einn erlendur leikmaður má vera í hverjum leikmannahópi.

Ataman gagnrýndi einnig skort á stuðningi frá FIBA og benti á að Tyrkland væri eitt þeirra landa sem styddi sambandið hvað mest, meðal annars með því að halda fjölmörg unglingamót þegar aðrar þjóðir vildu ekki taka það að sér. Þá vísaði hann til þess að þjóðir á borð við Spán og Frakkland tefldu fram mörgum leikmönnum með rætur í fyrrverandi nýlendum, og því kæmi neitun FIBA í máli Biberovic honum verulega á óvart.

Þar sem Tyrkir hafa valið bakvörðinn Malachi Flynn sem sinn erlenda leikmann í þennan landsleikjaglugga verður Biberovic ekki með gegn Íslandi á sunnudag, en Ataman tók fram að hann kæmi áfram til greina sem erlendur leikmaður í hóp Tyrkja fyrir lokamót HM næsta sumar.

Hér fyrir neðan má rifja upp flautukörfu Tarik Biberovic gegn Íslandi síðast þegar liðin mættust í Tyrklandi.

Fréttir
- Auglýsing -