Yfirgefur Njarðvík

Miðherjinn Aleksa Ilic er farinn frá Njarðvík og mun ekki leika fleiri leiki með liðinu á yfirstandandi leiktíð í Bónusdeild karla.

Njarðvík greindi frá brotthvarfi hans í dag, þakkaði leikmanninum fyrir samstarfið í vetur og óskaði honum velfarnaðar í næstu verkefnum á ferlinum.

Ilic náði að leika sjö deildarleiki í búningi Njarðvíkinga á tímabilinu og skilaði þar 13,4 stigum og 7,9 fráköstum að meðaltali í leik.

Fréttir
- Auglýsing -