Áhugaverð spurning barst til Aukasendingarinnar fyrir komandi átök í Bónusdeild karla: Hvaða þjálfari situr í heitasta sætinu?
Í nýjasta þættinum fóru þeir Davíð Eldur og JónFrí yfir stöðu allra þjálfara deildarinnar. Niðurstaðan var sú að í raun væri enginn þjálfari í beinni hættu á að verða rekinn á þessum tímapunkti. Markaðurinn meðal lausra þjálfara er mjög þunnskipaður og ef sæti myndi losna yrði frekar horft til öflugra aðstoðarþjálfara í deildinni, líkt og Lárusar Jónssonar hjá Grindavík eða Inga Þórs Steinþórssonar hjá Stjörnunni.

Þrátt fyrir það rýndu þeir félagar í þá stöðu ef liðum færi að ganga illa á tímabilinu og nefndu þá þrjá þjálfara sem taldir eru líklegastir til að yfirgefa lið sín ef á móti blæs:
- Finnur Freyr Stefánsson (Valur)
- Borche Ilievski (ÍR)
- Daníel Guðni Guðmundsson (Keflavík)
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




