Fjórir leikir fara fram í 7. umferð Bónusdeildar kvenna í körfubolta í kvöld og hefjast þeir allir klukkan 19:15.
Spennan verður mest í Grindavík þar sem tvö efstu lið deildarinnar mætast. Ósigrað topplið Grindavíkur (12 stig) tekur á móti Stjörnunni sem situr í öðru sæti með 10 stig og getur með sigri jafnað heimakonur á toppnum.
Í Ljónagryfjunni í Njarðvík eigast við tvö lið úr fjögurra liða pakkanum með 8 stig þegar Njarðvík (4. sæti) fær Hauka (3. sæti) í heimsókn. Á sama tíma mætast Keflavík (8. sæti með 2 stig) og KR (6. sæti með 8 stig) í Blue-höllinni, og á Sauðárkróki tekur Tindastóll (7. sæti með 4 stig) á móti stigalausu liði Ármanns (9. sæti).
Leikir kvöldsins í Bónusdeild kvenna:
- Grindavík – Stjarnan kl. 19:15
- Keflavík – KR kl. 19:15
- Njarðvík – Haukar kl. 19:15
- Tindastóll – Ármann kl. 19:15




