HomeBónus deildinBónus deild karlaFimm óvæntustu félagaskipti sumarsins í Bónusdeild karla

Fimm óvæntustu félagaskipti sumarsins í Bónusdeild karla

Undirbúningstímabilið fyrir átökin í Bónusdeild karla hefur verið líflegt og félagaskiptaglugginn boðið upp á miklar vendingar. Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fóru þeir Davíð Eldur og Jón Frí yfir helstu breytingar á leikmannahópum liðanna og stilltu upp lista yfir fimm félagaskipti innlendra leikmanna sem vöktu mesta athygli og komu einna mest á óvart fyrir komandi leiktíð.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Topp 5: Óvæntustu félagaskipti íslenskra leikmanna

Frank Aron

1. Frank Aron Booker (Valur ➔ Álftanes)

Stærstu og óvæntustu félagaskipti sumarsins meðal innlendra leikmanna. Frank Aron hefur verið lykilmaður og einn af hornsteinum Valsliðsins sem rakaði inn titlum undanfarin ár. Að hann yfirgefi Hlíðarenda til að ganga til liðs við Álftanes eru gríðarleg vending og skýr yfirlýsing um metnað forráðamanna Álftaness fyrir komandi tímabil.

Sveinn Búi

2. Sveinn Búi Birgisson (Lynn University ➔ Höttur)

Eftir veru í bandaríska háskólaboltanum (NCAA D2 hjá Lynn University) bjuggust margir við því að stærri félögin á höfuðborgarsvæðinu eða Suðurnesjunum myndu bítast um undirskrift Sveins Búa. Að Höttur á Egilsstöðum hafi tryggt sér þennan efnilega leikmann er mikið afrek og óvæntur liðsstyrkur fyrir austfirska liðið.

Halldór Garðar

3. Halldór Garðar Hermannsson (Keflavík ➔ Þór Þorlákshöfn)

Halldór Garðar hefur verið einn af traustustu leikstjórnendum og skotmönnum deildarinnar. Að hann kveðji Keflavík og gangi til liðs við Þór Þorlákshöfn — sérstaklega eftir að Þórsarar misstu sinn aðalþjálfara (Lárus Jónsson til Grindavíkur) — eru félagaskipti sem komu nokkuð á óvart.

Bragi

4. Bragi Guðmundsson (Ármann ➔ Keflavík)

Bragi átti frábært tímabil í Bónus deildinni með Ármanni, en að Grindavík hafi ekki náð í hann er óskiljanæegt. Keflvíkingar sjá greinilega mikið tækifæri í honum í nýju uppleggi hjá sér.

Hugi

5. Hugi Hallgrímsson (Haukar ➔ Njarðvík)

Hugi hefur verið lykilstólpi í teig Hauka undanfarin ár og mikilvægur hlekkur í þeirra leik. Að hann færi sig yfir í Ljónagryfjuna í Njarðvík kemur á óvart, sérstaklega í ljósi mikillar samkeppni um stöður hjá Njarðvíkingum og stöðu Hauka á markaðnum.

Karl Kristján

Aðrir leikmenn sem komu til greina (Honorable Mentions)

 Karl Kristján Sigurðarson (Valur ➔ Álftanes)

 Hilmir Arnarson (Álftanes ➔ Stjarnan)

 Björgvin Hafþór Ríkharðsson (ÍR ➔ Skallagrímur)

 Styrmir Jónasson (ÍA ➔ Ármann)

 Eysteinn Bjarni Ævarsson (Höttur ➔ Breiðablik)

Fréttir
- Auglýsing -