HomeNeðri deildir2. deild karlaÚrslit dagsins í Bæjarins beztu deild kvenna og 2. deild karla –...

Úrslit dagsins í Bæjarins beztu deild kvenna og 2. deild karla – Þór Þ. heldur toppsætinu og Laugdælir/Uppsveitir áfram ósigraðir

Fimm leikir fóru fram í neðri deildunum í dag, fjórir í 2. deild karla og einn í Bæjarins beztu deild kvenna.

Í Bæjarins beztu deild kvenna vann topplið Þórs Þorlákshafnar öruggan 81–61 útisigur gegn KV frammi fyrir 35 áhorfendum. Shawnteanna Tillman átti stórleik fyrir Þórsara með 26 stig, 6 fráköst, 7 stoðsendingar og 6 stolna bolta, á meðan Ingunn Erla Bjarnadóttir var stigahæst hjá KV með 12 stig og 5 fráköst. Með sigrinum er Þór Þ. áfram á toppi deildarinnar með 14 stig eftir átta leiki en KV situr í sjötta sæti með 6 stig.

Í B-riðli 2. deildar karla héldu Laugdælir/Uppsveitir sigurgöngu sinni áfram með 107–98 útisigri gegn Smára V og sitja á toppi riðilsins með fullt hús stiga, 16 stig eftir átta leiki. Þá vann Augnablik 114–95 útisigur á Þór Þ. u og lyfti sér upp í þriðja sætið með 10 stig, á meðan Léttir vann öruggan 114–88 sigur á botnliði Vængja Júpíters og fór upp í 6 stig í fimmta sæti. Í A-riðli vann Selfoss u svo stórsigur á Fylki, 106–78, og situr í sjötta sæti riðilsins með 6 stig.

Úrslit dagsins:

Bæjarins beztu deild kvenna:

  • KV 61 – 81 Þór Þ.

2. deild karla:

  • Þór Þ. u 95 – 114 Augnablik
  • Vængir Júpíters 88 – 114 Léttir
  • Smári V 98 – 107 Laugdælir/Uppsveitir
  • Selfoss u 106 – 78 Fylkir
Fréttir
- Auglýsing -