spot_img
HomeFréttirHrannar Hólm danskur meistari

Hrannar Hólm danskur meistari

Hrannar Hólm varð í kvöld danskur meistari með lið sitt SISU. Liðið sigraði Hørsholm 57-53 í þriðja leik liðanna og fór því SISU í gegnum tímabilið með því að sigra alla leiki nema einn í deild og bikar.

 
Lauren Aitch var atkvæðamest hjá SISU í kvöld með 23 stig og 16 fráköst en þess má geta að Kiki Lund sem lék um tíma með Haukum leikur með liðinu.
 
Í örstuttu spjalli við karfan.is sagði Hrannar að þetta væri frábær endir á frábæru tímabili.

Liðið sópaði Værløse í átta liða úrslitum og Horsens BC í undanúrslitum.

Árangurinn hjá Hrannari er vægast sagt frábær, eitt tap á tímabilinu hjá liði sem hann tók við um mitt tímabil í fyrra og félagið í fjárhagsvandræðum.

 
Titillinn var sá sautjándi í sögu SISU og sá fyrsti síðan 1998.

[email protected]

Mynd: SISU

Fréttir
- Auglýsing -