Njarðvíkingar sigruðu Valsmenn í nokkuð skrautlegum leik í Ljónagryfjunni í kvöld með 96 stigum gegn 87. Það voru Valsmenn sem leiddu í hálfleik með 4 stigum. Sterkur kafli hjá heimamönnum undir lok þriðja leikhluta virtist vera nóg fyrir þá að þessu sinni til að klára dæmið.
Valsmenn komu sterkir til leiks og í raun virtust þeir koma Njarðvíkingum gríðarlega á óvart með fínum leik framan af. Þeir leiddu meiri hluta seinni hálfleiks og Njarðvíkingar virtust pirraðir og púður þeirra fór meira í að vesenast í dómurum leiksins heldur en að hysja upp um sig brækurnar og hafa meiri áhyggjur af sínum leik.
Travis Holmes hélt Njarðvíkurliðinu á floti og hafði strax í fyrri hálfleik gert 20 stig. Varnarleikur heimamanna var slakur framan af og það nýttu gestirnir sér vel. Í þriðja leikhluta þá var eins og að leikur Valsmanna hefði hrunið og áttu þeir fá svör við stórleik Travis Holmes en maðurinn var funheitur þetta kvöldið.
Darnell Hugee opnaði á aðdáendaklúbb sinn í Njarðvík þetta kvöldið og voru dræmar viðtökur þar. Kappinn var að spila ágætlega en hafði fyrir vafasamar handahreyfingar sem urðu til þess að Styrmir Fjeldsted leikmaður Njarðvíkinga þurfti hreinlega að fara til tannlæknis. Hvort um viljandi aðgerðir hafi þar verið að ræða skal algerlega látið ósagt. En það voru hinsvegar ekki einu meiðsli kvöldsins því Valsmenn urðu fyrir gríðarlegri blóðtöku þegar að Hamid Dicko leikstjórnandi þeirra hljóp á skrín frá Hirti Einarssyni með þeim afleiðingum að hann fékk mikið högg á öxl. Kappinn var sárþjáður og má búast við að hann verði frá næstu vikurnar, jafnvel mánuði. Rándýrt fyrir Valsmenn að missa Hamid í meiðsli þegar liðið gersamlega berst fyrir lífi sínu í hverjum leik.
Maður leiksins Travis Holmes, engin spurning. "Fullorðinslína" sem hann skilar með 45 stigum, 13 fráköstum og 8 stoðsendingum. Garrison Johnson var sprækastur Valsmanna með 28 stig en Igor Tratnik var einnig að spila vel með 17 stig og 19 fráköst.




