spot_img
HomeFréttirHjalti segir stíganda hafa verið í íslenska landsliðinu síðustu misseri "Eigum fjandi...

Hjalti segir stíganda hafa verið í íslenska landsliðinu síðustu misseri “Eigum fjandi nóg af góðum leikmönnum”

Ísland tekur á móti Georgíu annað kvöld föstudag 11. nóvember í fyrri leik annars glugga seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins 2023.

Fyrir leikinn er staða Íslands nokkuð sterk í L riðil, liðið er með fjóra sigra, tvö töp og er í 3. sæti, en efstu þrjú lið riðilsins komast á lokamótið. Sigur annað kvöld myndi fara langleiðina með að tryggja farmiðann, þar sem að þá væri liðið tveimur sigurleikjum fyrir ofan Georgíu í riðlinum. Seinni leikur gluggans er svo þremur dögum síðar 14. nóvember gegn Úkraínu á þeirra velli í Lettlandi.

Hérna er 16 leikmanna hópur Íslands

Hérna er heimasíða mótsins

Karfan kom við á æfingu liðsins í dag og spjallaði við Hjalta Vilhjálmsson aðtoðarþjálfara liðsins um leikina tvo og möguleika Íslands að tryggja sig á lokamótið. Þá ræðir hann einnig samstarf hans, Baldurs Þórs Ragnarssonar og Craig Pedersen, en þeir þrír skrifuðu í gær undir samning við Körfuknattleikssambandið sem gildir út EuroBasket 2025.

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -