HomeNeðri deildir1. deild karlaTveir leikir á dagskrá í 1. deild karla

Tveir leikir á dagskrá í 1. deild karla

Tveir leikir fara fram í 1. deild karla í kvöld og hefjast þeir báðir klukkan 19:15.  

Á Selfossi fer fram Suðurlandsslagur þar sem heimamenn taka á móti Þór frá Þorlákshöfn. Selfyssingar eru um miðja deild með fjögur stig eftir tvo sigra og tvö töp á meðan Þórsarar sitja í 3. sætinu með sex stig eftir fjóra leiki.  

Á Akureyri fá Þórsarar erfiða heimsókn þegar ósigrað lið Hauka mætir í Höllina. Haukar hafa farið frábærlega af stað og eru með fullt hús stiga, átta stig í öðru sæti ásamt ÍA, en Þór Akureyri leitar að sínum öðrum sigri í deildinni og er með tvö stig í neðri hlutanum.  

Leikir dagsins í 1. deild karla:

 19:15 Selfoss – Þór Þ.  

 19:15 Þór Ak. – Haukar

Fréttir
- Auglýsing -