HomeBónus deildinBónus deild kvennaSemur á ný við Tindastól

Semur á ný við Tindastól

Tindastóll hefur samið á ný við bandaríska leikmanninn Maddie Sutton og mun hún ganga til liðs við hópinn á næstu vikum.

Maddie hefur látið mikið að sér kveða bæði innan vallar sem utan í Síkinu og hefur unnið hug og hjörtu leikmanna, þjálfara og stuðningsfólks með mikilli jákvæðni og góðri nærveru.

Í vor mætti hún í podcast-þáttinn Stólinn, þar sem hún fór ítarlega yfir feril sinn, áskoranir og sýn sína á skagfirska samfélagið.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér að neðan

Fréttir
- Auglýsing -