Helena Sverrisdóttir skrifaði fyrir helgi undir samning við Hauka um að taka að sér þjálfun hjá félaginu í sumar og snýr verkefnið að ungum og efnilegum stúlkum innan félagsins en einnig mun hún þjálfa á sumaræfingum Hauka. Þetta kemur fram á heimasíðu Hauka.
Á heimasíðu félagsins kemur fram að leikmenn og stjórn Hauka vænta mikils af starfi Helenu í sumar við að efla kraftinn í barna- og unglingastarfi Hauka en mikil fjölgun hefur orðið í iðkendafjölda hjá deildinni í vetur.
Haukar munu í sumar vera með sumaræfingar fyrir stelpur og stráka í 7.flokki karla og kvenna og upp í drengja- og stúlknaflokk sem Ívar Ásgrímsson yfirþjálfari yngri flokka og Helena Sverrisdóttir munu hafa veg og vanda að. Á sumaræfingum verða m.a. styrktar- og séræfingar fyrir leikmenn Hauka.
Þá mun Helena Sverrisdóttir verða með hóp 8 til 10 efnilegustu stelpna Hauka í sérþjálfunarbúðum í sumar en þar eru stelpur frá 11 ára upp í tvítugt sem munu fá tækniþjálfun hver fyrir sig í þeim atriðum sem þær þurfa helst að bæta sig.
Mynd: Helena ásamt nokkrum af þeim stúlkum sem munu njóta leiðsagnar hennar í sumar – www.haukar.is