Hinn frestaði leikur Hauka og Grindavíkur átti sér stað í kvöld en honum var frestað sökum óveðurs. Ekki vildi síðan betur til en að hann var engu að síður leikinn á meðan að óveður geysaði, en öllum til ánægju var honum ekki frestað aftur.
Haukastúlkur… eða nánar tiltekið Lele Hardy byrjaði af krafti og skoraði fyrstu 7 stig Hauka. En leikurinn einkenndist af stífri pressuvörn hjá Grindavíkur stúlkum og sveiflum í stigaskorun. Haukar höfðu þó yfirleitt forystu og tókst Grindavíkurstúlkum illa að komast yfir. Þær áttu oft mjög góða kafla þar sem þær voru mjög líklegar til að taka leikinn yfir en Haukastúlkur létu ekki til segjast og stoppuðu yfirleitt áhlaup þeirra áður en Grindavík tókst að komast yfir og enduðu á því að landa 73-67 sigri.
Eins og áður sagði þá skoraði Lele Hardy fyrstu 7 stig Hauka sem kom þeim í 7-2. Grindavík fóru í gírinn og yfirspiluðu Hauka og jafnaði María Ben Erlingsdóttir fyrir Grindavík og Rachel Tecca stal svo boltanum strax á eftir því og kom þeim yfir 9-11. Þær bláu hættu ekki þar og áttu samtals 12-0 kafla áður en Haukum tókst að svara. Leikhlutinn endaði síðan í 18-21.
Eftir skelfilega vörn í fyrsta leikhluta fóru Haukar að spila fanta góða vörn í þeim öðrum. Það varð þess valdandi að góði sóknarleikur Grindavíkurstúlkna varð mjög óöruggur og töpuðu þær 4 boltum á fyrstu fjóru mínútum leikhlutans. Þar sem Haukar leiddu 12-2. Hvað varðar að tapa boltanum trekk í trekk þá áttu þau hjól eftir að snúast Haukum í óhag síðar í leiknum en þær töpuðu alls 27 boltum sem lét 19 tapaða bolta Grindavíkur ekki líta svo illa út. En nóg um það, á þessum tímapunkti í leiknum henti Sverrir Þór Sverrisson Pálínu Gunnlaugsdóttur inn á og það átti aldeilis eftir að gera gæfumuninn. Hún skoraði 7 stig á 47 sekúndum og minnkaði muninn í 32-30. Eftir að hafa jafnað leikinn í 32-32 sáu Grindavíkurstúlkur ekki til sólar og voru yfirspilaðar af Haukum 10-1. En þær enduðu svo leikhlutann með því að skora 4-0 og laga stöðuna í 42-37 fyrir hálfleik.
Grindavík fóru að pressa sem olli Haukum töluverðum vandræðum bæði í sókn sem og vörn því þær bláklæddu fengu að fara þrívegis á vítalínuna á stuttum tíma þar það var tvívegis ‘og eitt’ tækifæri sem Grindavík nýtti sér mjög vel og komu sér inn í leikinn. Þrátt fyrir það tókst þeim ekki að buga Haukastúlkur sem héldu forystu sinni engu að síður að leikhlutanum loknum 58-51.
Fyrri hluti fjórða leikhluta var mikill barningur beggja liða og lítið skorað. Ingibjörg setti síðan þrist fyrir Grindavík til að minnka muninn í 5 stig er fjórar mínútur voru til leiksloka en Haukar létu ekki til segjast og héldu forystunni. En þá tók Tecca til sinna mála og skoraði 8 stig í röð fyrir Grindavík og minnkaði muninn í 68-67 með 1 mínútu eftir. Eftir að Sylvía Rún Hálfdanardóttir bætti stigi við forystu Hauka frá vítalínunni átti Inga Rún Svansdóttir mjög mikilvægan stolinn bolta er hún reif boltann af Rachel Tecca þegar 27 sekúndur voru eftir. Lele Hardy fékk boltann og geystist fram og skoraði ásamt því að fá víti sem hún setti einnig niður og ísaði þar með leikinn 72-67. Ingibjörg Jakobsdóttir braut svo kjánaega af sér þegar 1 sekúnda var eftir af leiknum þannig að Hardy komst aftur á vítalínuna til að stækka sigurinn aðeins meira. Lokatölur 73-67.
Mynd úr safni/ Sylvía Rún Hálfdanardóttir átti mjög fínan leik og var besti leikmaður Hauka á eftir Lele Hardy




