HomeFréttirHaukar með fimmta sigurinn í röð

Haukar með fimmta sigurinn í röð

Breiðablik fengu Hauka í heimsókn í kvöld í 26. umferð í Dominosdeild kvenna. Breiðablik er að róa lífróður í úrvalsdeildinni og þurftu á stigunum að halda í kvöld á meðan að Haukar neita að gefa eftir sætið sitt í úrvalsdeildinni. Breiðablik bitu vel frá sér í byrjun leiks en eftir að Haukar komust á gott skrið litu þær ekki til baka og lönduðu ágætlega þæginlegum 14 stiga sigri, 63-77. Breiðablik lögðust ekki á hliðina og áttu ágætis skorpur af og til í leiknum en aldrei nógu mikla til að komast almenniega inn í leikinn og stefna honum í tvísýnu.
 
Töluvert jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en þó nokkuð mikið brotið báðu megin og voru komin 6 vítaskot í leiknum eftir aðeins þrjár múnútur. Arielle Wideman sá síðan til þess að Blikar kæmust 15-10 yfir þegar hún átti tvær þriggjastiga sóknir þar sem hún skoraði og nældi sér í víti að auki sem hún nýtti að sjálfsögðu. Það átti eftir að reynast Breiðablik illa þar sem það kveikti heldur betur í Haukum sem skelltu í lás í vörninni og sáu til þess að Breiðablik myndi ekki skora aðra körfu í leikhlutanum á meðan að þær áttu 9-0 kafla þar sem Lele Hardy átti meðal annars fjögurrastiga sókn.
 
 
Eftir að hafa misst Haukanna 13 stigum frá sér í öðrum leikhluta komu blikastúlkur vel til baka og áttu 8-0 kafla til að minnka muninn niður 5 stig. Þar var Arielle Wideman allt í öllu en hún kom að öllum stigunum. Liðin skiptust síðan á körfum til loka fyrri hálfleiks og staðan því 36-41 í leikhlé.
 
 
Haukar hófu seinni hálfleik á 5-0 kafla og komu sér því 10 stigum yfir sem var forystan sem þær áttu eftir að halda út leikhlutann, plús/mínus ein karfa hér og þar.
Haukar komust mest 17 stigum yfir í fyrri hluti fjórða leikhluta áður en Breiðablik komu aðeins til baka og minnkuðu muninn í 10 stig. En þá komu tveir þristar í röð hjá Haukum sem gerðu endanlega út um vonir nýliðanna. Undir lok leiksins breyttist Isabella Ósk Sigurðardóttir í Antonio Davis og neitaði hverri Haukastúlkunni á eftir annari aðgengi að körfunni þar sem hún varði 3 skot á rétt tæpum tveim mínútum og 4 í leiknum.
 
Arielle Wideman var lang stigahæst hjá Breiðablik með 30 stig, 6 stolna bolta, 5 fráköst og 5 stoðsendingar.
Næstar henni komu Jóhanna Björk Sveinsdóttir með 13 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar og Berglind Karen Ingvarsdóttir með 10 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar.
 
 
Lele Hardy leiddi lið Hauka að venju og átti hún enn einn stórleikinn þar sem hún var með 35 stig, 26 fráköst, 7 stoðsendingar, 5 stolna bolta og 4 varin skot, eða aðeins einu vörðu skoti frá 5×5 leik.
Auður Íris Ólafsdóttir átti einnig góðan leik en hún var með 8 stig, 10 fráköst, 5 stoðsendingar og 3 stolna bolta.
Afmælisbarnið Sólrún Inga Gísladóttir getur einnig vel við unað sinni frammistöðu en hún skoraði 10 stig og tók 3 fráköst.
 
 
 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -