Haukar tóku á móti Keflavík með kústinum í kvöld í leik númer þrjú í einvígi þeirra í undanúrslitum Dominosdeildar kvenna í Schenkerhöllinni. Haukar unnu leikinn afgerandi með 30 stigum 88-58 og því var Keflavík sópað út úr úrslitakeppninni. Haukar komnar úrslit og vikufrí á meðan þær bíða átekta úr einvígi Snæfells og Vals.
Keflavík mættu mjög ákveðnar til leiks og skoruðu fyrstu 3 stig leiksins. Eftir það skiptust liðin á nokkrum körfum en Keflavík sýndu vígtennurnar og að það væri ekki hugur í þeim að leggjast niður og leyfa Haukum að leika sinn leik. Eftir þrista frá Lovísu Falsdóttur og Söru Rún Hinriksdóttur voru Keflavík komnar í 11-18 og Bjarni Magnússon gat ekki annað en tekið leikhlé til að rífa sínar stúlkur upp. Leikhlutinn endaði síðan í 17-22.
Það var mikil barátta í gangi hjá liðunum í upphafi annars leikhluta og leikurinn í járnum. En þá kom Gunnhildur Gunnarsdóttir inn á og var hún svo sannarlega tilbúin til að spila eftir að hafa þurft að verma bekkinn vegna villuvandræða snemma í fyrsta leikhluta. Reif hún lið sitt áfram með leiðtogahæfileikum sínum þegar hún jafnaði leika í 29-29 og var það upphafið á 16-0 kafla hjá Haukum þar sem þær gjörsamlega léku Keflavík sundur og saman. Það var svo við hæfi að hún skildi skora seinustu körfu Hauka í fyrri hálfleik og jafnframt sitt 11. stig í leikhlutanum. Algjörir yfirburðir hjá Haukum þar sem þær rústuðu leikhlutanum 31-10 og með 16 stiga forystu í hálfleik 48-32.
Keflavík komu miklu betur stemmdar til leiks eftir hálfleikinn og virtust ætla að takast að koma sér inn í leikinn eftir að Lovísa smellti þrist og minnkaði muninn í 60-50. Lele Hardy og Lovísa Björt Henningsdóttir sáu hins vegar til þess að Haukar leiddu 65-50 að leikhlutanum loknum.
Hardy sprakk hreinlega út í fjórða leikhluta og sá hún ein og sér um 9-0 kafla Hauka á fyrstu þremur mínútum fjórða leikhluta. Keflavík réðu ekkert við hana og voru þær einnig gríðarlega óheppnar í sókninni þar sem að grátlega mörg skot hjá þeim rúlluðu af hringnum. Þessar tvær staðreyndir drápu leikinn fyrir Keflavík og var ekki annað að sjá af svip þeirra að þetta væri búið. Hardy var hins vegar ekki alveg búin og bætti hún við 4 stigum til viðbótar áður en hún var tekin útaf og því með 13 stig í leikhlutanum. Lokatölur 88-58.
Mynd/ Axel Finnur – Lele Hardy var Keflvíkingum gríðarlega erfið í kvöld með 32 stig, 17 fráköst, 6 stoðsendingar og 6 stolna bolta




