Keflavík tóku á móti Haukum í leik tvo í undanúrslita einvígi þeirra og eigðu þær von um að jafna leika í 1-1. Keflavík varð ekki að ósk sinni í kvöld þrátt fyrir frábæra byrjun en Haukar voru þeim hreinlega ofviða í þremur af fjórum leikhlutum. Leiddar áfram af Lele Hardy og Auði Írisi Ólafsdóttur unnu Haukar sannfærandi 65-80 og eru því komnar í 2-0.
Næstu leikur er strax á Miðvikudaginn kl.19:15 og þurfa Keflavík að eiga algjöran toppleik í 40 mínútur ætli þær að forðast kústinn skelfilega.
Auður Íris Ólafsdóttir opnaði stigaskorið í leiknum með laglegum þrist. Sara Rún Hinriksdóttir var hinsvegar ekki lengi að jafna með einum sjálf. Haukar voru í tómu tjóni í sókninni og töpuðu boltanum í fjórgang á fyrstu tveimur mínútum leiksins. Leikskipulag Keflavíkur í fyrsta leikhluta var að loka teignum algjörlega og gefa Haukum frekar þriggjastigaskot. Það heppnaðist glimmrandi vel hjá þeim því Haukar þáðu alla þessa opnu þrista með þökkum en brenndu af öllum nema fyrsta eða níu stykkjum. Leikar voru jafnir 7-7 eftir fimm mínútur en þá fóru Haukar að hleypa Keflavík á vítalínuna hvað eftir annað sem hjálpaði Keflavík að ná forystu. DiAmber Johnson tók líka 7 stiga rispu á seinustu þremur mínútum leikhlutans þannig að Keflvík leiddu með 12 stigum eftir fyrsta leikhlutann 20-8.
Johnson var áfram sjóðandi heit og hóf leikhlutann á því að hamra þrist í andlitið á Haukunum í fyrstu sókninni. Eftir að hafa verið stigalausar í fimm mínútur í leiknum settu Haukar loksins körfu þegar Gunnhildur Gunnarsdóttir setti þrist. Sá þristur lífgaði heldur betur upp á Haukanna í sókninni ásamt því að þær settu í lás í vörninni. Haukarnir yfirspiluðu Keflavík 13-4 á fyrstu fimm mínútum annars leikhluta og voru komnar inn í leikinn. Johnson skoraði þá 5 snögg stig til að reyna halda aftur af Haukunum en það var ekki nóg því þær voru komnar í gírinn og voru miklu betri í leikhlutanum og leikar því mjög jafnir í hálfleik 32-30.
Athygli skal vakin á því að Hardy var aðeins komin með 4 stig í hálfleik og voru það Margrét Rósa Hálfdanardóttir (8), Auður Íris (7) og Gunnhildur (6) sem leiddu stigaskorið hjá Haukum.
Hjá Keflavík var Johnson með 17 stig og Sara Rún með 8.
Haukar bættu dýrvitlausar til leiks í síðari hálfleik og yfirspiluðu þær Keflavík 8-0 á fyrstu tveimur mínútunum! Andy Johnston sá ekkert annað í stöðunni en að taka leikhlé til að reyna stoppa atgang Hauka. Keflavík komast á blað eftir leikhléið en tókst ekki að halda aftur af Haukunum sem voru í miklu stuði og voru þær með 8 stiga forskot, 43-51, að leikhlutanum loknum.
Keflavík brutu og brutu af sér þannig að Haukar voru komnar í bónus eftir aðeins tvær og hálfa mínútu í fjórða leikhluta. Þegar tæpar fimm mínútur voru til leiksloka setti Auður Íris þrist sem kom Haukum í 53-64 og var það karfan sem slökkti endanlega í trú Keflavíkur að þær gætu unnið leikinn. Haukar miklu sterkari og unnu sannfærandi 65-80 sigur.
Mynd/ [email protected] – Auður Íris Ólafsdóttir átti stórleik í kvöld 18 stig, 8 fráköst, 3 stoðsendingar og 3 stolnir boltar




