HomeFréttirHaukar fóru illa með Skallagrím

Haukar fóru illa með Skallagrím

Haukar tóku á móti Skallagrím í kvöld í Dominosdeild karla. Haukar byrjuðu leikinn af krafti og voru fljótir að koma sér í góða forustu. Skallagrímur vöknuðu aðeins til lífsins í öðrum leikhluta en meira varð það ekki. Haukar voru með algjöra yfirburði í þriðja og fjórða leikhluta og sigruðu þeir örugglega 107-68.
 
Haukar byrjuðu leikinn betur og voru Skallagrímsmenn ekkert að hjálpa sér með því að brjóta alltof mikið á Haukamönnum og hleypa þeim nánast á vítalínuna í hverri sókn.
Þegar Skallagrímsmenn virtust vera finna taktinn þá hamraði Haukur Óskarsson niður þrist og kom Haukum í 16-7 sem drap dampinn algjörlega. En hann var sjóðandi heitur í leikhlutanu m og skoraði 12 stig. Alex Francis var næstum því kominn með tvöfalda tvennu og var hann svo ákáfur í fráköstunum að hann bókstaflega reif lokafrákast leikhlutans úr höndum Hjálmars Stefánsson liðsfélaga síns. Haukar með yfirburða forystu 27-14.
 
Töluvert meira jafnræði var með liðunum í öðrum leikhluta og vöknuðu Tracy Smith Jr., Davíð Guðmundsson og Daði Berg Grétarsson til lífsins og veittu Sigtryggi Arnari Björnssyni aðstoð í sóknarleik Skallagríms, en hann hafði leitt vagninn fyrir þá í fyrsta leikhluta. Skallagrím tókst að vinna leikhlutan 23-26 en Haukar ennþá með góða forystu 52-40.
 
Skallagrímur fóru aftur að brjóta kjánalega af sér í þriðja leikhluta og hleypa Haukum oft á línuna. Daði Berg fékk meðal annars á sig óíþróttamannslegavillu fyrir að grípa utan um Francis þegar hann var kominn framhjá honum í einni sókninni.
Haukar miklu betri og komnir með 20 stiga forystu um miðjan þriðja leikhluta og fóru þeir að leyfa sér að leika sér aðeins. Áttu glæsilega sendingu á eftir glæsilegri sendingu.
 
Sigurinn kominn í höfn og þufti Ívar Ásgrímsson ekki einu að láta Emil Barja né Hauk Óskarsson spila í fjórða leikhlutanum. Bekkurinn var því tæmdur snemma í fjórða og nýtti Hjálmar sér það og skoraði hann hverja körfuna á fætur annari, en hann skoraði 14 stig í leikhlutanum og þar af 3 þrista úr 3 tilraunum.
 
 
 
Mynd – Axel Finnur/ Sigurður Þór Einarsson hér á harða spretti
Fréttir
- Auglýsing -