A-landslið karla tekur þátt í Evrópukeppninni á næsta ári en KKÍ greindi frá því í dag að sambandið hafi ákveðið að skrá liðið til leiks á ný eftir hlé í síðustu keppni sem lauk með pompi og prakt í Litháen nú síðastliðið sumar. Þá var því einnig uppljóstrað í dag að A-landslið kvenna færi á Norðurlandamótið í maí 2012 en eins og sakir standa er liðið án þjálfara.
,,Vinna stendur nú yfir við að ráða landsliðsþjálfara á A-landslið kvenna og vonandi verður hægt að tilkynna um þá ráðningu á næstu tveimur vikum,“ sagði Hannes í samtali við Karfan.is í dag. A-landsliðið mun þó ekki taka þátt í Evrópukeppninni.
,,Við ákváðum að hefja leik á NM og sjá svo eftir tvö ár hvernig framhaldið yrði. Þessi ákvörðun er að hluta fjárhagslegs eðlis og einnig sá vilji tl að byggja upp gott landslið og fara ekki of geyst af stað. Því miður eru margar þjóðir sem taka ekki þátt í EM kvenna næsta sumar og er það ákveðið áhyggjuefni fyrir evrópskan körfubolta.“
Verkefnin verða ærin í landsliðsstarfi KKÍ næsta sumar og kvaðst Hannes spenntur fyrir að sjá U16 ára kvenna og U18 ára karla í Evrópukeppninni. ,,Svo ekki sé nú talað um nýtt og breytt fyrirkomulag hjá A-landsliði karla,“ en búið er að afnema A og B deildir í keppninni og þegar dregið verður 4. desember gæti Ísland lent með stórþjóðum í riðli og því mögulega von á einhverjum af fremstu körfuknattleiksmönnum heims til landsins.
,,Það verður virkilega gaman að sjá þann 4. desember hverjir verða með okkur í riðli,“ sagði Hannes en eins og tíðkast í knattspyrnunni verður dregið eftir styrkleikum í riðlana og Ísland verður þá í neðsta styrkleikaflokki.