Staðan er 42-40 Grindavík í vil þegar blásið hefur verið til hálfleiks í viðureign þeirra og Þórs úr Þorlákshöfn í undanúrslitum Lengjubikars karla.
J´Nathan Bullock hefur farið mikinn í liði Grindvíkinga og er með 21 stig í leikhléi en hjá Þór er Guðmundur Jónsson með 10 stig og þeir Darrin Govens og Darri Hilmarsson báðir með 9 stig.
Fyrri hálfleikur hefur verið fjörugur svo það er von á góðu í síðari hálfleik.




