Bakken bears er á góðri leið með að verða danskur meistari. Liðið sem Guðni Valentínusson leikur með sigraði Svendborg Rabbits 75-71 á útivelli í kvöld og er því komið í 3-0 í einvíginu en í Danmörku þarf að vinna 4 leiki.
Guðni kom lítillega við sögu í kvöld og tók 1 frákast.
Adama Darboe fyrrverandi leikmaður Grindavíkur var næststigahæstur Kaníanna með 12 stig.
Liðin mætast í fjórða leik á mánudag í NRGI hallen í Árósum og geta Bakken menn unnið titlinn í tíunda sinn en liðið vann fyrst 1997.
Mynd: www.bakkenbears.dk




