Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í gær og í nótt. Memphis Grizzlies eru búnir að planta San Antonio Spurs upp við vegginn fræga og þá þarf Oklahoma sigur til viðbótar til að komast áfram. Sömuleiðis þurfa Nowitzki og félagar í Dallas aðeins einn sigur í viðbót gegn Portland til þess að komast áfram í næstu umferð úrslitakeppninnar.
Úrslit næturinnar:
Memphis Grizzlies 104 – 86 San Antonio Spurs
Spurs 1-3 Grizzlies
Mike Conley var stigahæstur hjá Grizzlies með 15 stig og 7 stoðsendingar en Tony Parker gerði 23 stig og tók 3 fráköst í liði Spurs.
Dallas Mavericks 93 – 82 Portland Trail Balzers
Dallas 3-2 Portland
Dirk Nowitzki gerði 25 stig í leiknum, tók 8 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Jason Terry bætti við 20 stigum af Dallasbekknum og Tyson Chandler gerði 14 stig og reif niður 20 fráköst. Hjá Portland var Andre Miller með 18 stig og 7 stoðsendingar og Gerald Wallace bætti við 16 stigum og 9 fráköstum.
Denver Nuggets 104 – 101 Oklahoma City Thunder
Oklahoma 3-1 Denver
Ty Lawson gerði 27 stig í liði Denver og tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Kevin Durant var stigahæstur hjá Oklahoma með 31 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar. Russell Westbrook bætti við 30 stigum og Serge Ibaka bætti við 13 stigum og 14 fráköstum.
Mynd/ Mike Conley var stigahæstur hjá Grizzlies í nótt.




