HomeFréttirGrindavík sendir Val á veiðar

Grindavík sendir Val á veiðar

Grindavík sigraði Val í 28. umferð Dominos deildar kvenna fyrr í kvöld, á heimavelli sínum í Röstinni, með 80 gegn 77 stigum. 

 

Leikurinn sem slíkur, hrein úrslit um hvort liðið kæmist upp í fjórða sæti deildarinnar og þar með, inní úrslitakeppnina þetta árið.

 

Fyrir leikinn höfðu þessi lið mæst þrisvar áður í vetur. Sá fyrsti fór fram í Grindavík þann 12. nóvember síðastliðinn og endaði hann með 8 stiga (81-89) sigri gestana úr Val. Annar leikurinn fór fram þann 17. desember að Hlíðarenda og endaði með 6 stiga (71-77) sigri Grindavíkur. Síðasti leikur þessara liða fór einnig fram að Hlíðarenda þann 14. febrúar og endaði hann með 14 stiga sigri heimastúlkna í Val.

Munurinn í deild aðeins 2 stig fyrir þennan leik (Grindavík 32 – Valur 30), en þar sem að Valur var yfir í innbyrðis seríu liðanna fyrir þennan leik (2-1), dugði þeim aðeins sigur í þessum leik, líkt og Grindavík reyndar, til þess að komast í úrslitakeppni þessa árs. 

Fyrri hálfleikur þessa leiks var að miklu leyti í járnum, þar sem að Valur í heildina þó, tók skrefin á undan. Fyrsti leikhlutinn endaði þó með 2 stiga forystu heimastúlkna (23-21), en þegar liðin héldu til búningsherbergja í hálfleik hafði það svo snúist við. Gestirnir af Hlíðarenda þá komnir með 4 stiga (39-43) forystu (sem hefði, þó, verið meiri ef Petrúnella hefði ekki sett tvær neðan úr bæ rétt fyrir lok hálfleikssins)

Taleya Mayberry var atkvæðamest gestana í hálfleik með 18 stig og 3 fráköst. Fyrir heimastúlkur var það hinsvegar Petrúnella Skúladóttir sem dróg vagninn með 13 stigum (5/10 af vellinum) og 3 fráköstum.

 

Eitthvað hefur ræða fyrrum varnarjaxlsins Sverris Þórs, þjálfara Grindavíkur, virkað á lið hans í hálfleik. Því eftir hléið virtust heimastúlkur mæta mun stemmdari varnarlega heldur en þær höfðu áður sýnt af sér í leiknum. Náðu að halda Val í litlum 11 stigum í 3. leikhlutanum og með því leggja nokkuð vel upp fyrir lokaleikhlutann (57-54)

 

Grindavík náði svo að byggja á það enn frekar í þeim 4., hægt en bítandi, juku þær við forystuna. Voru mest komnar í 8 stiga forystu í leikhlutanum. Valur náði þó að skera það forskot niður í lokin og gera þetta að virkilega spennandi leik.

Þegar að innan við mínúta var eftir af leiknum fengu þær (gestirnir) tvær sóknir (þrjár tilraunir úr þeim) til þess að jafna leikinn eða komast yfir, en allt kom fyrir ekki. Grindavík hélt út og vann leikinn með 3 stigum (80-77)

Lokamínútur – Grindavík gegn Val:

 

 

Því ljóst að Grindavík mætir deildarmeisturum Snæfells í fyrstu umferð úrslitakeppni Dominos deildar kvenna á meðan að Valur, þrátt fyrir hetjulega baráttu, þarf að sætta sig við að fara í sumarfrí.

 

Maður leiksins var leikmaður Grindavíkur, Petrúnella Skúladóttir, en hún skoraði 28 stig, gaf 10 stoðsendingar á þeim 34 mínútum sem hún spilaði í leik kvöldsins.

 

Tölfræði 

Myndasafn

Umfjöllun,myndir,viðtöl/ Davíð Eldur

Grindavík-Valur 80-77 (23-21, 16-22, 18-11, 23-23)  

Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 28/10 fráköst, Kristina King 18/7 fráköst/7 stoðsendingar, Pálína María Gunnlaugsdóttir 18/9 fráköst, Lilja Ósk Sigmarsdóttir 7/6 fráköst, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 4/5 fráköst, Ingibjörg Jakobsdóttir 3/4 fráköst, Jeanne Lois Figeroa Sicat 2/5 stoðsendingar, Berglind Anna Magnúsdóttir 0, Katrín Ösp Rúnarsdóttir 0, Hrund Skuladóttir 0, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 0, Elsa Katrín Eiríksdóttir 0.

Valur: Taleya Mayberry 28/5 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 16, Kristrún Sigurjónsdóttir 11/7 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 8/5 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 7/13 fráköst/7 stoðsendingar, Ragnheiður Benónísdóttir 7/5 fráköst, Bylgja Sif Jónsdóttir 0, Margrét Ósk Einarsdóttir 0, Sóllilja Bjarnadóttir 0, Regína Ösp Guðmundsdóttir 0.

Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson, Davíð Tómas Tómasson

Fréttir
- Auglýsing -