spot_img
HomeFréttirGæi með leikmannakynninguna í Njarðvík á föstudag

Gæi með leikmannakynninguna í Njarðvík á föstudag

Njarðvíkingurinn Garðar Viðarsson hefur skotist á stjörnuhimininn síðustu vikur þar sem hann er gríðarlega virkur á samfélagsmiðlinum Snapchat.

 

Oft þekktur sem Gæi eða IceRedneck mun kynna inn lið Njarðvíkur og Stjörnunnar er liðin mætast í þriðju umferð Dominos deildar karla næstkomandi föstudag. Gæi starfar sem vörubílsstjóri og hefur sýnt frá daglegu lífi sínu sem hefur gjörsamlega slegið í gegn.

 

Nú mun hann færa sig yfir í leikmannakynningarnar í Njarðvík og er það eitt næg ástæða til að láta sjá sig á þessum stórleik Stjörnunnar og Njarðvíkur sem fram fer klukkan 20:00 á föstudagskvöldið.

 

Myndband sem Víkurfréttir birtu af snapchat-sögu Gæa má sjá hér að neðan:

 

Gæi á snappinu from Víkurfréttir ehf on Vimeo.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -