HomeFréttirForsetafrúin klæddist Keflavíkurbúning

Forsetafrúin klæddist Keflavíkurbúning

 
Dorrit Moussaieff fór á kostum í hófi sem haldið var Íslandsmeisturum Keflavíkur í körfubolta kvenna til heiðurs í félagsheimili Keflavíkur um síðustu helgi. Dorrit var sérstakur gestur og hún fékk afhentan Keflavíkurbúning sem hún klæddi sig í á staðnum, öllum viðstöddum til mikillar gleði. Þetta kemur fram hjá Víkurfréttum, www.vf.is
Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags ávarpaði samkomuna og sagði árangur Keflavíkurkvenna einstakur og undir það tóku Árni Sigfússon, bæjarstjóri og Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands. „Þetta er einstakur árangur í íþróttasögu Íslands,“ sagði Hannes og Árni sagði: „Þetta er líklega heimsmet“.
 
Keflavíkurstúlkur unnu alla Íslandsmeistaratitla sem voru í boði í vetur í 8 flokkum, frá 6. flokki upp í meistaraflokk. Liðin unnu líka alla bikarmeistaratitla nema einn og því er óhætt að segja að þetta hafi verið einstakt.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -