HomeFréttirFjölnismenn keyrðu yfir Hött í seinni hálfleik

Fjölnismenn keyrðu yfir Hött í seinni hálfleik

 

Fjölnismenn sýndu svo sannarlega klærnar í kvöld þegar þeir sigruðu Hött mjög örugglega í fyrsta leik úrslitaseríu um sæti í Domino’s deild karla á næsta ári.  Liðin skiptu stigunum nokkuð bróðurlega á milli sín til að byrja með en heimamenn tóku frumkvæðið í seinni hluta annars leikhluta og gjörsamlega keyrðu yfir gestina í seinni hálfleik.  Ólafur Torfason og Daron Lee Sims áttu stórleik fyrir Fjölnismenn, Ólafur skoraði 16 stig, tók 16 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.  Daron Sims skoraði 32 stig og hirti 13 fráköst.  Í liði Hattar var Agust Magnus Bracey stigahæstur með 24 stig en æstur kom Gerald Robinson með 17 stig og 6 fráköst.  Fjölnir fær því tækifæri til þess að tryggja sér sæti í Domino’s deildinni að ári í næsta leik liðanna sem fer fram á Egilsstöðum

 

Liðin skiptust á að leiða leikinn í upphafi en gestirnir komust í 4-6 sem Fjölnir svaraði svo í stöðuna 6-8.  Ólafur Torfason byrjaði þennan leik af miklum krafti og þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður hafði hann skorað 7 stig, hirt 5 fráköst og gefið 3 stoðsendingar.  Það hafði þá verið jafnt á flestum tölum og stóð í 13-13 þegar leikhlutinn var hálfnaður.  August Magnus Bracey var að svara að krafti fyrir gestina og hafði sett 10 af fyrstu 15 stigum Hattar.  Frákastabaráttan í fyrsta leikhluta var algjörlega eign Fjölnis en þeir höfðu þá tekið 15 fráköst, þar af 8 sóknarfráköst gegn aðeins 5 fráköstum Hattar, sem tóku ekkert sóknarfrákast í fyrsta leikhluta.  Gríðarlega góð nýting Hattar fyrir utan þriggja stiga línuna skilaði þeim því að það munaði aðeins tveimur stigum á liðunum eftir fyrsta leikhluta, 25-23.  Höttur hafði þá sett niður 4 þrista í 7 tilraunum á meðan Fjölnir hafði aðeins nýtt eitt skot af 8 fyrir utan þriggja stiga línuna.  

 

Eftir að Fjölnismenn höfðu haft frumkvæðið meginþorra fyrsta leikhluta breyttu Hattarmenn því fljótlega í öðrum leikhluta með góðu áhlaupi.  Þegar tvær mínútur voru liðnar voru þeir komnir yfir í stöðunni 28-32 og Hjalti Þór gerði strax breytingar á Fjölnisliðinu til þess að svara þessu áhlaupi.  Fjölnir hafði jafnað metin aftur í 34-34 þegar Viðar Hafsteinsson tók leikhlé fyrir Hött en annar leikhluti var þá tæplega hálfnaður.  Höttir skipti þá yfir í þrjá tvo svæðisvörn til þess að reyna að svara góðum sóknarleik heimamanna sem voru fljótlega komnir í 7 stiga forskot, 41-34.  Páll Fannar Helgason jók þann mun svo í 10 stig stuttu seinna með laglegu þriggja stiga skoti sem Höttur var nánast að gefa Fjölnismönnum með breyttum áherslum í vörninni, 44-34.  Fjölnismenn héldu þessu 10 stiga forskoti þar til á lokasekúndum fyrri hálfleiks þegar Daron Lee Sims setti flautukörfu frá miðju og forskot heimamanna því 13 stig þegar flautað var til hálfleiks.  

 

Daron lee Sims var stigahæstur Fjölnismanna í hálfleik með 21 stig og 7 fráköst en næstu menn voru Ólafur Torfason með 13 stig og 8 fráköst og Garðar Sveinbjörnsson með 8 stig.  Í liði Hattar var August Magnus Bracey stigahæstur með 17 stig en næstu menn voru Gerald Robinson með 10 stig og Andrés Kristleifsson með 5 stig.  Fjölnir var einnig að vinna frákastabaráttu fyrri hálfleiks með sjaldséðum yfirburðum, 26 fráköst gegn aðeins 7 fráköstum Hattar sem höfðu ekki ennþá tekið sóknarfrákst í leiknum.  

 

Fjölnismenn gengu á lagið í upphafi seinni hálfleiks og höfðu náð forskotinu upp í 18 stig þegar mest lét eftir tvær mínútur í stöðnunni 60-42.  Sem fyrr voru það Fjölnismenn sem hirtu öll fráköstin en fyrsta sóknarfrákast gestana í leiknum kom eftir þrjár mínútur af leik í þriðja leikhluta en það var Andrés Kristleifsson sem tók það. Munurinn á liðunum fór svo upp fyrir 20 stig í fyrsta skiptið í leiknum þegar Pálla Fannar Helgason setti þrist fyrir Fjölni og kom þeim í 21 stigs forskot, 66-45.  Páll Fannar setti næstu fjögur stig leiksins eftir það og forskot Fjölnis var komið í 25 stig þegar tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhluta, 70-45.  Þegar einn leikhluti var eftir höfðu gestirnir minnkað forskot Fjölnis um 2 stig, 72-49.  

 

Leikurinn leystist örlítið upp í upphafi fjórða leikhluta, bæði lið hentu upp í ótímabær þriggja stiga skot oft og mörgu sinnum, leikurinn varð mjög hraður og Hjalti Þór tók leikhlé fyrir Fjölni þegar þrjár mínútur voru liðnar í stöðunni 77-56.  Fjölnismenn skoruðu næstu fjögur stig leiksins og Höttur tók leikhlé, 81-56.  Aftur settu Fjölnismenn næstu fjögur stig og forskotið því komið upp í 30 stig, 86-56, þegar fjórar mínútur voru eftir af leiknum.  Bæði lið skiptu lykilmönnum útaf þegar um það bil tvær mínútur voru eftir og úrslitin ljós.  Fjölnir kláraði svo leikinn með öruggum 26 stiga sigri, 88-62.  

 

[email protected]
Mynd:  Axel Finnur

Fréttir
- Auglýsing -