Fjölnir tryggði sér sæti í efstu deild á næsta tímabili með öruggum sigri á Hetti á Egilsstöðum í kvöld,81-98. Fjölnir vann því úrslitaeinvígið 2-0 og það nokkuð örugglega. Fyrri leikinn unnu þeir með 26 stigum og þann seinni með 17 stigum.
Fjölnir gerði vel að dreifa álaginu í kvöld en fimm leikmenn liðsins skoruðu 10 stig eða meira í kvöld. Daron Lee Sims var stigahæstur í liði Fjölnis í kvöld með 27 stig og 18 fráköst en næstu menn voru Páll Fannar Helgason með 25 stig og Róbert Sigurðsson með 15 stig. Í lið Hattar var Gerald Robinson stigahæstur með 26 stig og 14 fráköst en næstu menn voru Andrés Kristleifsson með 18 stig og Agust Magnus Bracey með 17 stig.
Karfan.is bíður Fjölni velkominn aftur í hóp þeirra bestu í Domino’s deildina.
mynd úr fyrri viðureign liðanna, Axel Finnur




