NCAA Final Four fer fram í kvöld í Arlington, Texas þegar Florida mætir Connecticut annarsvegar og Kentucky mætir Winsonsin hins vegar. Florida er hæst metna liðið í fjögurra liða úrslitum en þeir hafa ekki tapað leik síðan 2. desember síðastliðinum og aðeins tveimur leikjum á tímabilinu. Það er hinsvegar áhugavert að seinasti tapleikur Florida var einmitt á móti Connecticut sem þeir mæta í kvöld kl 6:09 PM ET eða kl 10:09 í kvöld.. Síðustu 15 leiki hafa Connecticut aðeins tapað tveimur leikjum og báðum gegn Louisville sem margir höfðu haldið að færu lengra en raun bara vitni í ár þegar þeir duttu út í 16 liða úrslitum. Það verður því stál í stál þegar fyrri leikur Final Four fer fram í kvöld
Fyrir þá allra áhugasömustu þá er hægt að horfa á leikina á ncca.com gegn vægu gjaldi.
Seinni leikur kvöldsins, Kentucky gegn Winsconsin fer fram kl 8:49 PM ET eða 11 mínútur í 1 í nótt.




