HomeFréttirEndurkoma af bestu gerð í Hellinum

Endurkoma af bestu gerð í Hellinum

 

ÍR vann í kvöld líklega besta endurkomuleik tímabilsins þegar þeir kláruðu Grindavík á lokasprettinum í Hellinum í kvöld.  Grindvíkingar áttu leikinn til að byrja með og náðu strax í fyrsta leikhluta 13 stiga forskoti sem varð svo 20 stig í hálfleik.  Þeim tókst að auka þann mun í 22 stig á tímabili en í fjórða leikhluta mætti nýtt ÍR lið sem gjörsamlega keyrði yfir gestina.  Í stuttu máli kláruðu ÍR-ingar fjórða leikhluta 30-7 og unnu á endanum 5 stiga sigur við gríðarlega mikinn fögnuð leikmanna og stuðningsmanna ÍR, 90-85.  Þrír leikmenn ÍR deildu með sér titlinu stigahæsti maður liðsins en það voru félagarnir Trey Hampton, Sveinbjörn Claessen og Matthías Orri Sigurðarson en þeir settu allir 18 stig.  Í liði Grindavíkur átti Ómar Örn Sævarsson fínan leik með 16 stig, 12 fráköst og 7 stoðsendingar en Oddur Rúnar Kristjánsson var stigahæstur með 20 stig.  

 

 

Grindvíkingar voru beittari sóknarlega í upphafi leiks og nýttu skotin undir körfunni vel, eftir 3 mínútur af leik voru þeir 2-6 yfir.  Þeir létu kné fylgja kviði og voru komnir með 12 stiga forskot þegar fyrsti leikhluti var rúmlega hálfnaður 7-19.  Óli Ólafs lét heimamenn finna fyrir sér og hafði þá skorað 8 stig eða einu stigi meira en ÍR.  Bjarni Magnússon tók þá leikhlé og las yfir sínum mönnum.  Stigunum rigndi niður eftir leikhlé og þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir ÍR-ingar til þess að minnka muninn þá svöruðu gestirnir alltaf um hæl.  Þegar flautað var til loka fyrsta leikhluta var forskot Grindavíkur 13 stig, 19-32.  Það var Rodney Alexander sem setti glæsilegan þrist sem söng í netinu um það bil einni sekúndu áður en leiktíma lauk. 

 

 

Grindvíkingar héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og juku forskot sitt hægt og rólega.  Þrátt fyrri að Ólafur, sem var stigahæsti leikmaður Grindavíkur eftir fyrsta leikhluta, sæti meirihluta annars leikhluta náðu þeir að bæta í forskotið og höfðu náð því upp í 20 stig þegar flautað var til hálfleiks.  Staðan var þá 33-53 og útlitið ekki bjart fyrir ÍR

 

Heimamenn mættu svo af krafti í seinni hálfleik og höfðu skorað 8 stig gegn fyrstu tveimur stigum Grindavíkur þegar Sverrir Þór tók leikhlé fyrir gestina, 41-56.  Gestirnir sátu ekki lengi á sér  heldur settu þeir næstu 5 stig leiksins eftir tvo stolna bolta sem skrifast á óvandaðan sóknarleik ÍR.  Grindavík lét ekki þar við sitja heldur létu þristunum rigna yfir heimamenn og höfðu náð 22 stiga forskot þegar fjórar mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta, 45-67.  Rodney Alexander lét einhver óvönduð orð falla þegar þriðji leikhluti var hálfnaður og líkaði dómurum leiksins það ekki, þeir dæmdu því tæknivillu og Matthías Orri fór á línuna.  Rodney var þar að fá sína fjórðu villu og fór rakleiðis á bekkinn í hvíld.  Leikurinn virtist vera kominn í ákveðið jafnvægi hvað stigamun varðar en Grindvíkingar hleyptu ÍR ekki mikið nær en þessi 20 stig og þegar einn leikhluti var eftir munaði 18 stigum, 60-78. 

 

Það voru svo heimamenn sem byrjuðu aftur betur í upphafi fjórða.  Þeir minnkuðu muninn niður í 12 stig  áður en Grindavík náði að skora sín fyrstu stig í leihlutanum, 66-78.  Það var svo Ómar Örn sem skoraði fyrstu stig gestanna þegar þrjár og hálf mínúta var liðin af fjórða leikhluta. ÍR stefndi hraðbyr á að gera leikinn spennandi þegar fjórar og hálf mínúta var eftir, þeir stálu þá boltanum tvær sóknir í röð.  Annar boltinn endaði í höndunum á Trey Hampton sem tróð boltanum með látum.  71-81.  Óli Óla braut svo af sér í þeirri næstu og fékk dæmt á sig ásetningsbrot sem var hans fimmta villa.  Hann var vægast sagt óánægður með þá ákvörðun dómara og uppskar tæknivillu í kjölfarið.  Matthías Orri fór á línuna og minnkaði muninn á liðunum í 6 stig, 75-81, og ÍR fékk boltan á hliðarlínunni.  Stuðningsmenn ÍR voru skiljanlega gríðarlega ánægðir með þetta, stóðu á fætur og létu vel í sér heyra.  Sveinbjörn Claessen minnkaði muninn svo ennþá meira í næstu sókn og allt í einu munaði bara 4 stigum á liðunum og leikurinn orðinn æsispennandi.  Rodney Alexander fékk sína fimmtu villu og munaði um minna fyrir Grindavík þar sem tveir af lykilmönnum þeirra sátu núna á bekknum með fimm villur. 

 

Stemmingin var öll með ÍR þegar Ragnar Örn Bragason stal boltanum af Ómari , brunaði fram og tróð með látum.  Stuðningsmenn ÍR gjörsamlega trylltust og ekki versnaði stemmingin þegar ÍR komst yfir stuttu seinna í stöðunni 84-83.  Ragnar Örn hafði þá tekið 2 fráköst, stolið einum bolta og skorað 2 stig á innan við einni mínútu.  Það var svo ekki fyrr en að Svenni Claessen kom ÍR þremur stigum yfir, 86-83, að Sverrir Þór tók leikhlé fyrir Grindvíkinga með 1:18 eftir á klukkunni.  ÍR gékk á lagið, skoruðu 6 stig gegn 2 stigum Grindavíkur á lokakaflanum og fögnuðu gríðarlega í leikslok, 90-85. 

 Umfjöllun og myndir : [email protected] 

 

Tölfræði leiksins  

 

Mynasafn úr leiknum 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -