spot_img
HomeFréttirEkkert ókeypis í sigri Skallagríms á Haukum

Ekkert ókeypis í sigri Skallagríms á Haukum

Skallagrímur vann Hauka 70-57 í fimmtu umferð Dominos deildar kvenna. Heimakonur náðu fljótlega góðri forystu sem Haukar náðu aldrei að saxa almennilega ár. Það var ekki fyrr en gestirnir náðu góðu áhlaupi í fjórða leikhluta að spenna virtist vera að færast í leikinn.

 

Haukar áttu þá ekki meira til á bensín tanknum og Skallagrímur sigldi sigrinum þægilega heim að lokum.

 

Þáttaskil

Fyrsti leikhluti var banabiti Hauka í dag. Þær settu einungis sjö stig í leikhlutanum og fóru strax að elta Skallagríms liðið. Þrátt fyrir góðar tilraunir í lokinn til að gera þetta að leik fór of mikil orka hjá Haukum í að elta og sprungu gestirnir síðustu mínúturnar. Skallagrímur spilaði fínan varnarleik framan af og kom sér fljótt í góða stöðu.

 

Tölfræðin lýgur ekki

Skallagrímur gjörsamlega rústaði frákastabaráttunni í dag með 60 fráköst gegn 35 fráköstum Hauka. Þarna lá helsti munur liðanna í dag.  Fyrir vikið fékk Skallagrímur mun fleiri skot í leiknum og það gerði reynslulitlu liði Hauka erfiðara fyrir.

 

Hetjan

Jóhanna Björk reif sitt lið áfram þegar illa gekk og endaði með sterka tvöfalda tvennu, 10 stig og 19 fráköst. Einnig má taka fram hlut Rósu Bjarkar Pétursdóttur hjá Haukum, hún endaði með 16 stig og átta fráköst.

 

Kjarninn

Skallagrímur hreinlega mistókst að vinna þennan leik sannfærandi, þær höfðu gott tækifæri til þess í fyrri hálfleik en það er eins og það vanti einhvert drápseðli í liðið. Haukar sýndu að þær eru til alls vísar og á góðum degi geta þær unnið öll lið í deildinni. Ungar og efnilegar stelpur með framtíðina fyrir sér.

 

Skallagrímur hefur nú unnið þrjá leiki af fimm og þeir voru allir á heimavelli. Fjósið verður mjög sterkt vígi fyrir liðið í vetur en ef Skallagrímur ætlar að vera í öðru sætinu sem þeim var spáð þurfa þær að vinna einhverja útileiki. Það þarf þó karakter til að klára leiki eins og í kvöld þar sem Haukar gáfust aldrei upp og gáfu Skallagrím ekki neitt.

Fréttir
- Auglýsing -