Rétt í þessu unnu Rússar Ítali. Þó sá leikur hafi verið í öðrum riðli en þeim íslenska, þá hefði sigur Ítala getað tryggt Ísland inn á EM.
Björninn frá Rússlandi tókst að hafa heimamenn frá Ítalíu undir í jöfnum og hörkuspennandi leik. Það þýðir að möguleikar Íslands eru þeir sömu og þeir voru fyrir helgina. Gott stigahlutfall vinnur með okkur, en leikurinn á miðvikudag er lykilleikur fyrir körfuboltann á Íslandi.

Staða og stigahlutfall liðanna sést í töflunni hér að ofan, en liðin í fyrsta sæti eru grænlituð, annað sætið er gult og þriðja sæti rauðlitað.
Ísland er með fimmta besta árangur 2. sætis liða sem stendur. Sigri Ísland Bosníu á miðvikudag skiptir allt hitt engu máli, þar sem Ísland nær fyrsta sæti með 11 stiga sigri, en er öruggt áfram í 2. sæti riðilsins með sigri. Svartfjallaland sem einnig situr í 2. sæti síns riðið er hins vegar bara með einn sigur, og eru því alltaf fyrir neðan Ísland svo framarlega sem þeir ná ekki sínum öðrum sigri.
Svartfellingar mæta Hollendingum í lokaleik D riðils. Sá leikur er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lönd, þar sem Hollendingar eygja enn möguleika á að komast inn á EM. Hollendingar þurfa þó 32 stiga sigur til að koma stigahlutfalli sínu upp í 1,0, og miðað við söguna er það gríðarlega ólíklegt en ekki útilokað. Sigri Hollendingar með minni mun en 32 stigum aukast möguleikar Íslands umtalsvert. Svartfellingar þurfa að vinna með 17 stigum til að koma stigahlutfalli sínu upp í 1,0. Vinni önnur þjóðin lítinn sigur aukast möguleikar Íslands umtalsvert.
Hvað sem öðru líður, þá eru möguleikar Íslands alfarið í höndum strákanna okkar.
*viðbót* Lettar eru með besta stigahlutfallið, en hafa leikið einum leik færra í töflunni en Ísrael og Belgía.
*viðbót* Í alþjóðakörfubolta fá lið 1 stig fyrir að ljúka leik og 2 stig fyrir að sigra. Í þessum útreikningum er gert ráð fyrir að öll lið ljúki sínum leikjum á miðvikudagskvöld og fái þar með sitt stig, hið minnsta.




