Darri Hilmarsson hefur fengið sig lausan undan samningi sínum við KR. Darri staðfesti þetta við Morgunblaðið á föstudag. Darri var lánaður til Hamars á síðustu leiktíð og lék mjög vel með Hvergerðingum. Þetta kom fram í Morgunblaðinu í gær/ www.mbl.is
Darri mun hvorki leika með Hamri né KR á næstu leiktíð og hann sagðist ætla að velja á milli þriggja félaga sem sett hafa sig í samband við hann. Um er að ræða nýliðana í Val og Þór Þorlákshöfn en einnig ÍR en þangað fór samherji hans, Ellert Arnarson.
Mynd/ [email protected]
www.mbl.is




