spot_img
HomeFréttirClippers stöðvuðu Portland

Clippers stöðvuðu Portland

Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Denver Nuggets lögðu LA Lakers og grannar Lakers í Clippers urðu fyrstir til þess að leggja Portland Trail Blazers að velli þetta tímabilið. Meistarar Dallas Mavericks fengu svo skell á útivelli þegar Minnesota Timberwolves hakkaði þá í sig.
Minnesota 99-82 Dallas
Tvennurnar hrannast upp hjá Kevin Love, kappinn setti 25 stig og tók 17 fráköst fyrir Minnesota í nótt og Spánverjinn Ricky Rubio kom með 14 stig og 7 stoðsendingar af bekknum. Hjá Dallas var Dirk Nowitzki með 21 stig og 4 fráköst.
 
Denver 99-90 LA Lakers
Ítalinn Danilo Gallinari var stigahæstur í liði Denver með 20 stig og 5 stolna bolta en Pau Gasol var stigahæstur hjá Lakers með 20 stig og 11 fráköst.
 
LA Clippers 93-88 Portland
Blake Griffin splæsti í tvennu með 20 stig og 10 fráköst og Caron Butler kom honum næstur með 19 stig. Hjá Portland kom Jamal Crawford með 23 stig af bekknum.
 
Tvö lið eru enn ósigruð í NBA deildinni en það eru Miami Heat og Oklahoma City Thunder, bæði 5-0.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Washington 86-94 Boston
Orlando 102-96 Toronto
Miami 129-90 Charlotte
Cleveland 98-82 New Jersey
Chicago 104-64 Memphis
Sacramento 96-80 New Orleans
 
Mynd/ Chris Paul og félagar í LA Clippers urðu fyrstir þetta tímabilið til að leggja Portland Trail Blazers að velli.
 
 
   
Fréttir
- Auglýsing -