Væntanlega hefur frammistaða Brynjars Þórs Björnssonar ekki farið framhjá nokkrum manni í úrslitakeppninni en undanfarið hefur kappinn átt hvern stórleikinn á fætur öðrum með KR. Brynjar setti 32 stig í gærkvöldi þegar KR mátti sætta sig við ósigur í Ásgarði og staðan því 1-1 í einvígi KR og Stjörnunnar. Í síðustu þremur leikjum, frá oddaleiknum gegn Keflavík og í tveimur fyrstu leikjunum gegn Stjörnunni hefur Brynjar farið á kostum.
Framan af var úrslitakeppnin ekkert slor hjá Brynjari, samtals gerði hann 40 stig í tveimur leikjum gegn Njarðvíkingum og í fyrstu fjórum leikjunum gegn Keflavík gerði hann 69 stig. Í oddaleiknum gegn Keflavík gerði Brynjar 34 stig og í leik eitt gegn Stjörnunni gerði hann 28 stig og í gærkvöldi setti hann niður 32 stig, samtals 94 stig í þremur leikjum! Það er því óhætt að kasta því fram að Brynjar hafi upp á síðkastið skrúfað verulega frá hitanum.
Við hentum saman helstu tölum hjá kappanum í úrslitakeppninni til þessa:




