Undir 20 ára kvennalið Íslands leikur sinn fjórða leik í dag á Evrópumótinu í Makedóníu. Í fyrsta leik lagði liðið Slóvakíu í opnunarleik mótsins, 56-60, en í þeim öðrum tapaði liðið fyrir Noregi, 57-71. Í fyrradag tapaði liðið svo aftur fyrir sterku liði Slóveníu í lokaleik riðlakeppninnar, 49-76.
Í umspili um 9.-18 sæti mótsins vann Ísland sinn fyrsta leik gegn Kósovó í gær, 44-65, en í dag kl. 14:30 leika þær sinn annan leik í þessari úrslitakeppni um sæti á mótinu gegn Króatíu.
Hérna verður hægt að fylgjast með lifandi tölfræði
Hérna er 12 leikmanna lokahópur undir 20 ára liðs kvenna
Leikurinn verður líkt og aðrir leikir mótsins sýndur í beinni vefútsendingu FIBA, en hana er hægt að nálgast hér fyrir neðan.