Keflvíkingar geta andað léttar en Jamir Chaplin, lykilmaður liðsins í Bónus deild karla, er ekki alvarlega meiddur eftir að hafa þurft að yfirgefa völlinn í tapleiknum gegn Álftanesi á dögunum.
Chaplin átti stórleik framan af gegn Álftnesingum áður en hann fór meiddur af velli og óttast var að hann yrði frá um skeið. Samkvæmt staðfestingu frá forráðamanni Keflavíkur var hins vegar aðeins um krampa að ræða og ekkert alvarlegt á ferðinni. Hann verður klár í slaginn og mætir á æfingu hjá liðinu á morgun eins og vanalega.




