Undir 20 ára karlalið Íslands leikur sinn fjórða leik í dag á Evrópumótinu í Georgíu.
Fyrsta leiknum tapaði liðið gegn Eistlandi, í öðrum lögðu þeir Holland, og í þeim þriðja höfðu þeir betur gegn Rúmeníu. Í dag kl. 10:30 að íslenskum tíma leika þeir lokaleik riðlakeppninnar gegn Lúxemborg.
Hérna verður hægt að fylgjast með lifandi tölfræði
Hérna er 12 leikmanna lokahópur undir 20 ára liðs karla
Leikurinn verður líkt og aðrir leikir mótsins sýndur í beinni vefútsendingu FIBA, en hana er hægt að nálgast hér fyrir neðan.