Hérna fylgir textalýsing af leik Íslands og Finnlands í Undir 18 ára kvenna. Íslenska liðið hefur unnið einn leik og tapað einum. Það reynir á þær í dag þar sem Finnsku stelpurnar hafa ekki tapað leik hingað til á mótinu.
Árni Hilmarsson aðstoðarþjálfari í viðtali eftir leik:
Fjórði leikhluti
– Leik lokið – Finnar vinna nokkuð stóran sigur, 78-57.
– 57-75 Margrét Ósk skilar boltanum ofaní eftir laglega sendingu frá Söru.
– 55-69 Guðlaug fer aftur á línuna, brotið á henni þegar hún er að bera upp boltan. Hún nýtir bæði vítin
– 53-68 Guðlaug er send á línuna strax eftir, brotið á henni við að ná frákasti í vítaskoti Söru. Guðlaug nýtir bæði vítin.
– 51-68 Sara er send á línuna, en Ísland er komið í bónus. Hún nýtir annað.
– 50-68 Elsa kemur sterk inn af bekknum fyrir Söndru og skorar strax í næstu sókn, vel gert
– 48-66 Sandra fær sína fimmtu villu, hún hefur lokið leik í dag
– 46-64 Leikhlé Ísland – Sex mínútur eftir
– 46-64 Átta stig í röð frá þeim Finnsku, þetta fer að verða erfitt.
– 46-62 Leikhlé Finnland
– 46- 62 Finnar byrja fjórða leikhluta mjög vel, setja fyrstu fimm stigin og gera brekkuna fyrir íslenska liðið örlítið brattari
Þriðji leikhluti:
– 46-57 Óheppni, Finnar skora úr seinasta skoti leikhlutans, boltinn skoppar af hringnum, hátt uppí loftið og svo ofaní
– 46-55 Glæsileg sókn hjá Íslenska liðinu, þær létu boltan ganga vel á milli sín sem endaði með sniðskoti hjá Söru. Hún fékk vítið að auki en tókst ekki að nýta vítið.
– 42-55 Sara Rún setur tvö víti niður
– 40-55 – Finnar splæsa í þrist og Ísland tekur leikhlé
– 40-52 Finnum gengur betur að finna leiðina að körfunni. Íslenskar tilraunir eru of þvingaðar. Stelpurnar eru að taka mun fleiri fráköst en Finnar en það dugar ekki til.
– 40-49 Aftur er það Guðlaug sem skorar, stoppar snöggt við vítalínu og tekur skotið óáreitt. Vel gert
– 38-46 Guðlaug setur niður 2 stig
– 36-46 Ísland tekur leikhlé
– 36-44 Ísland er að frákasta vel, en sóknarleikurinn gengur illa. Þrjár tilraunir forgörðum í sömu sókninni,
– 36-39 Sara Rún skellir niður þrist fyrir Ísland, fyrsti þristur Íslands í leiknum (1-4).
– 33-37 Eva Margrét gerir fyrstu stig Íslands í síðari háflleik af vítalínunni.
– Finnar byrja með boltann.
Hálfleikur: Ísland 31-37 Finnland
Sandra Lind Þrastardóttir 11 stig / 8 fráköst
Sara Rún Hinriksdóttir 8 stig / 3 fráköst
Guðlaug Björt Júlíusdóttir 3 stig / 9 fráköst
Annar leikhluti
Guðlaug Björt sækir að finnsku vörninni í öðrum leikhluta
– Hálfleikur
– 31-37 Finnar með beittan þrist þegar 25sek eru til hálfleiks…staðan 31-37 fyrir Finna nú þegar komið er leikhlé.
– 31-34 Eva Margrét með flottan snúning í finnska teignum og skorar úr stökkskoti, lagleg hreyfing hjá Ísafjarðardömunni.
– 29-34 Guðlaug setur niður bæði vítin og minnkar muninn í 5 stig, Ísland þarf að þétta raðirnar í vörninni hér á síðustu augnablikum fyrri hálfleiks.
– 27-34 og 1.30mín eftir af fyrri hálfleik, Guðlaug Björt á leið á vítalínuna.
– 24-28 fyrir Finna, 2.57mín til hálfleiks. Hér lá Guðbjörg Ósk Einarsdóttir eftir í gólfinu og hélt um höfuð sér, þetta var ekki alvarlegt en dómarar leiksins voru ekki með á nótunum og létu leikinn halda áfram, báru því fyrir sig að hafa ekki séð að aðeins fjórir íslenskir varnarmenn hefðu verið í vörn í 7-10 sekúndur, japl, jaml og fuður það!
– 4.47mín til hálfleiks, Sara og Sandra leiða íslenska liðið báðar með 8 stig.
– Forskot Finna stendur í fimm stigum þegar annar leikhluti er hálfnaður, 28-23.
– Sjö stig í röð frá þeim finnsku, þær pressa boltan sem hefur skilað þeim nokkrum auðveldum stigum, 26-19.
– Annar leikhluti fer rólega af stað, báðum liðum gengur illa að koma boltanum ofaní, 19-19 eftir tvær mínútur.
– Sandra, Elsa, Bríet, Sandra og Þóra Kristín byrja annan leikhluta
Fyrsti leikhluti
– Finnar leiða 19-17 þegar flautað er til loka fyrsta leikhluta.
– 17-17 og ein mínúta eftir af fyrsta leikhluta.
– Sara Rún kemur íslandi yfir af vítalínunni, 15-16
– Elsa kemur sterk inn, í þetta skiptið eftir sendingu frá Söndru, 15-14.
– Elsa skorar úr hraðaupphlaupi eftir glæsilega sendingu frá Guðlaugu, 13-12.
– Sóknarfráköstin eru að detta okkar megin, þrjú sóknarfráköst í sömu sókninni og stelpurnar leita að jöfnunarstiginu
– Íslenska liðið hefur náð að loka í vörninni og núna munar aðeins tveimur stigum á liðunum, 10-8
– Sara Rún svarar fyrir Ísland, hún hefur skorað öll fjögur stig Íslands til þessa, 10-4
– Þær Finnsku hafa stolið boltanum í tvígangn núna og refsa með næstu fimm stigum. Varnarleikurinn þeirra er að ganga fullkomnlega upp í upphafi, 10-2.
– Finnska liðið byrjar betur og leiðir 5-2 eftir tvær mínútur
– Byrjunarlið Íslands er :Sandra lind, Sara Rún, Guðalug Björt, Bríet Sif og Eva.