spot_img
HomeFréttirÁtta liða úrslit Powerade hefjast í dag

Átta liða úrslit Powerade hefjast í dag

10:24

{mosimage}
(8-liða úrslit hefjast með leik Njarðvík og Hamar/Selfoss)

8-liða úrslit Powerade-bikarsins hefjast í dag þegar Njarðvík tekur á móti H/S kl. 19:15 í Njarðvík. Hamar/Selfoss komst áfram með því að sigra Fjölni 84-74 á fimmtudaginn.

Á sunnudag lýkur svo átta liða úrslitunum með þremur leikjum. Klukkan 16:00 mætast KR og Grindavík á heimavelli KR. Grindavík sigraði Þór Þorlákshöfn 80-74 í Grindavík á fimmtudagskvöldið.
KR hafði þegar tryggt sér sæti í Átta liða úrslitum ásamt Njarðvík, Keflavík og Skallagrím. Fjögur efstu liðin frá því í fyrra komust sjálfkrafa í átta liða úrslit og eiga heimavallarréttindi þar.

Klukkan 19:15 mætast svo Keflavík og Tindastóll annars vegar og svo Skallagrímur og Haukar. Skallagrímur og Keflavík munu leika á heimavelli í þessum viðureignum.
Tindastóll kom mörgum á óvart með því að sigra Snæfell á
Stykkishólmi á fimmtudagskvöldið. Í þeim leik fór Lamar Karim, Bandaríkjamaðurinn í röðum Tindastóls, á kostum og skoraði 45 stig.

Það verður spennandi að fylgjast með næstu leikjum í Powerade bikarnum um helgina. Hver leikur er úrslitaleikur um hvaða lið kemst áfram og ætti baráttan því að vera í hámarki.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -