Stelpurnar í 7. flokki Njarðvíkur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta um síðustu helgi, 9.–10. maí, á heimavelli sínum í Njarðvík.
Liðið sýndi mikla yfirburði á lokamótinu og vann alla leiki sína með glæsibrag. Það er ljóst að framtíðin er björt í Njarðvík og óskum við leikmönnum, þjálfurum og félaginu öllu innilega til hamingju með glæsilegan árangur.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af liðinu eftir að bikarinn fór á loft.
Mynd / KKÍ



