HomeFréttirStjarnan Íslandsmeistarar í 7. flokki drengja

Stjarnan Íslandsmeistarar í 7. flokki drengja

Stjarnan varð um helgina Íslandsmeistari í 7. flokki drengja í körfubolta, en lokamót vetrarins fór fram í íþróttamiðstöðinni að Varmá dagana 8.–10. maí.

Strákarnir úr Garðabænum sýndu frábæra takta og uppskáru titilinn eftir harða og spennandi keppni, en mótið markaði jafnframt glæsilegan endapunkt á tímabilinu hjá þessum efnilegu körfuboltamönnum framtíðarinnar.

Hér fyrir ofan má sjá mynd af liðinu eftir að bikarinn fór á loft.

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -