Stjarnan hefur gengið frá tveggja ára samningi við Agnesi Maríu Svansdóttur, sem gengur til liðs við Garðabæjarliðið frá Keflavík.
Agnes María er uppalin í Keflavík þar sem hún lék alla yngri flokka og lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki árið 2019. Hún kemur til Stjörnunnar sem öflugur liðsstyrkur fyrir átökin í efstu deild á komandi tímabili.
Hinn nýi leikmaður Stjörnunnar á að baki farsælan feril með yngri landsliðum Íslands og vakti sérstaka athygli á Norðurlandamótinu árið 2024 þar sem hún var valin í úrvalslið skipað leikmönnum tuttugu ára og yngri. Þá hefur Agnes María þegar látið til sín taka á stóra sviðinu en hún á að baki sex landsleiki með A-landsliði Íslands.



