Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum kemur til með að bera nafn flutningafyrirtækisins DB Schenker en samið var við fyrirtækið um að verða aðalstyrktaraðili Knattspyrnufélagsins Hauka. DB Schenker er leiðandi fyrirtæki í vöruflutningum á heimsvísu sem hefur nýlega opnað skrifstofur hér á landi undir eigin merkjum og bætist Ísland þá í hóp rúmlega 2.000 þjónustumiðstöðva félagsins í um 140 löndum.
Eins og fram kemur á heimasíðu Hauka styður DB Schenker við íþróttahreyfinguna í mörgum löndum enda metur fyrirtækið mikils það forvarnarstarf sem íþróttahreyfingin vinnur. Stefnan hefur verið að velja sér eitt sterkt og öflugt íþróttafélag í hverju landi og styðja það með myndarskap.
Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum mun bera nafn Schenker og verða kölluð Schenkerhöllin og knattspyrnuleikvangur Hauka verður Schenkervöllurinn og bætast Ásvellir þá í hóp með handbolta-, knattspyrnu- og íshokkihöllum í Þýskalandi og Skandinavíu.
Mynd: Helgi Ingólfsson og Ingvar Nilsson frá DB Schenker ásamt Samúel Guðmundssyni og Magnúsi Gunnarssyni frá Haukum – haukar.is