HomeFréttirÁgúst Björgvins: Tókst að gera það sem við ætluðum okkur

Ágúst Björgvins: Tókst að gera það sem við ætluðum okkur

Ágúst Björgvinsson vildi ekki gera of mikið úr stórum sigri Vals á Snæfelli í kvöld sem vannst með 26 stigum, 82-56. Valur tryggði sér þá oddaleik í Stykkishólmi á þriðjudaginn um pláss í úrslitum Domino´s deildar kvenna.

Kom þessi stóri sigur þér á óvart hérna í kvöld?
 
“Já og nei, ég er kannski ekkert mikið að pæla í lokastöðunni. Okkur tókst að gera það sem við ætluðum okkur að gera. Einbeiting var góð. Vörnin var frábær og einbeitingin skein úr andltinu á okkar mönnum sem hefur vantað í síðustu leikjum”.

Þið keyrðuð hratt á þér í kvöld og voruð kannski að nýta ykkur stóran hóp í mjög stífu leikjaprógrammi?
“Já, við erum búin að vera að reyna að keyra á þær í öllum leikjunum og hefur tekist misvel, en það tókst vel í kvöld”. 

Hefur þetta þétta leikjaprógram haft áhrif á Valsliðið í þessu einvígi?
“Nei, ég meina við erum búin að undirbúa okkur fyrir þetta í allan vetur.  Það hefur verið þannig að úrslitakeppnin er spiluð stíft, kannski aðeins stífara núna en áður en mín reynsla í öll þessi ár sem ég hef verið hér þá hefur þetta verið kannski einn tveir dagar á milli.  Við erum búin að vera að undirbúa okkur fyrir það í vetur, spila á mörgum leikmönnum og það eru margir sem eru að leggja ú púkk.  Það var þannig í kvöld og þetta var algjörlega sigur liðsheildarinnar.  Frábær varnarvinna og svo dreifist stigaskorið vel, það er það sem við höfum talað um að sé okkar styrkleiki”. 

Hvað þarf Valur svo að gera til þess að sigra í Hólminum?
“Núna er það bara þessi leikur og allir leikir sem hafa verið spilaðir hingað til skipta bara engu máli, Það er bara næsti leikur, mæta nógu hungraðar í þann leik.  Við vorum í nákvæmlega sömu stöðu í fyrra.  Getan er til staðar og ef hungrið er nógu mikið þá förum við áfram”.  

[email protected]

 
Fréttir
- Auglýsing -