spot_img
HomeFréttirÆgir Þór um hversu erfitt það hafi verið að halda sér í...

Ægir Þór um hversu erfitt það hafi verið að halda sér í standi fyrir landsleikina “Það hefur tekið á”

Ísland lagði Lúxemborg í gær í fyrri leik landsliðsglugga undankeppni heimsmeistaramótsins 2023. Seinni leikur liðsins er á morgun gegn Kósovó og verður hann í beinni útsendingu á RÚV og YouTube. Mikil spenna er í riðil Íslands, þar sem að öll lið eru jöfn nema Lúxemborg og er sigur í leik morgundagsins liðinu því afar mikilvægur. Leikirnir fara fram í sóttvarnarbólu FIBA í höfuðborg Slóvakíu, Bratislava.

Karfan heyrði í leikmanni liðsins Ægi Þór Steinarssyni og spurði hann út í leikina tvo, aðstæður í Slóvakíu og hvernig það hafi gengið að halda sér í formi í æfingabanninu, en Ægir var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður Íslands gegn Lúxemborg í gær.

Fréttir
- Auglýsing -