spot_img
HomeFréttirMyndasafn: Njarðvík í undanúrslit í 10. flokki kvenna

Myndasafn: Njarðvík í undanúrslit í 10. flokki kvenna

 
Tvíhöfði fór fram í DHL-Höllinni í Vesturbænum í gærkvöldi. Fyrst vann KR góðan sigur á Njarðvík í Iceland Express deild kvenna og strax að þeim leik loknum mættust félögin að nýju í bikarkeppninni í 10. flokki kvenna.
Njarðvíkingar höfðu öruggan 88-36 sigur í þeim leik þar sem Guðlaug Júlíusdóttir skoraði 29 stig fyrir Njarðvík og Hrefna Jónsdóttir 15. Hjá KR var Sigríður Elísa Eiríksdóttir með 13 stig. Njarðvíkingar eru því komnir í undanúrslit bikarsins í 10. flokki kvenna.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -