Brandon Brown, leikmaður Fjölnis, hefur komið með látum inn í Iceland Express deild karla og látið dýrslega þegar hann hefur sig til lofts og eftirminnileg er troðslan hans gegn Tindastól á dögunum. Í síðustu umferð var Brandon Brown hinsvegar boðinn velkominn til landsins þegar troðslukóngur okkar Íslendinga, Ólafur Ólafsson leikmaður Grindavíkur, skellti nýjasta leikmanni deildarinnar á ,,plakat.“
Brown fékk líka að láta til sín taka í leiknum og ljóst að menn þurfa að beina myndavélunum að þessum kappa þegar hann bregður undir sig betri fætinum.
Mynd/ Þorgils Jónsson: Ólafur hefur verið lengi í háloftafimleikum en þessi mynd var tekin árið 2007.





